Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafa hrint af stað hækkun húsnæðislána með því að hækka neysluskatta.
Þótt ríkisstjórnin hafi heitið því að slá skjaldborg um heimili landsins á tímum hækkandi húsnæðislána, lækkandi kaupmáttar og hrynjandi fasteignaverðs, mun hún valda enn frekari hækkun á húsnæðislánum almennings í nánustu framtíð.
Í Peningamálum Seðlabanka Íslands er útskýrt hvernig ríkisstjórnin, undir stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar, hefur með aðgerðum sínum aukið verðbólgu, sem veldur því að verðtryggð lán hækka.
"Liður í áætlun stjórnvalda um að endurheimta jöfnuð í ríkisbúskapnum er að hækka álögur á ýmsar vörur, t.d. áfengi og bensín. Áætlað er að þessi ákvörðun hafi hækkað vísitölu neysluverðs um rúmlega hálfa prósentu, sem mun hafa áhrif á mælda tólf mánaða verðbólgu fram á mitt næsta ár," segir þar.
Með öðrum orðum hafa aðgerðir ríkisstjórnarinnar hækkað 20 milljóna króna verðtryggt húsnæðislán um 100 þúsund krónur.
Ríkisstjórnin áformar að hækka enn meira neysluskatta, sem mun valda aukinni verðbólgu. Það mun aftur leiða til þess að verðtryggð húsnæðislán almennings hækka enn meira.
Í síðustu viku greindi Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra frá því að húsnæðisskuldir almennings yrðu ekki lækkaðar, þrátt fyrir að þær hafi verið hækkaðar um tæplega fjórðung með verðtryggingunni síðastliðið eitt og hálft ár. Vísaði hann til samkomulags við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í þeim efnum. Hins vegar er ekki að finna ákvæði um bann við niðurfellingum húsnæðisskulda í því samkomulagi við sjóðinn sem gert var opinbert síðasta vetur.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun