ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Stjórnendur 365 krafðir um mánaðarlaun

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:29 › 13. ágúst 2009
Stjórnendur krafðir um mánaðarlaun.

Stjórnendur krafðir um mánaðarlaun.

  • Ari Edwald: Svona vildu þeir hafa þetta.

    Ari Edwald: Svona vildu þeir hafa þetta.

Fréttastjórar og ritstjórar innan 365 miðla geta átt von á því að félagið krefji þá um bætur allt að einum mánaðarlaunum fari svo að 365 verði dæmt til að greiða bætur vegna umfjallana miðlanna. Þetta kemur fram í nýjum siðareglum 365 miðla.

Í bréfi sem Ari Edwald sendi starfsmönnum 365 í kjölfar starfsmannafundar í dag eru nýju siðareglurnar útlistaðar en að sögn Ara voru þær samþykktar af stjórn félagsins þann 4. júní síðastliðinn.

Þar er gert ráð fyrir að fyrirtækið krefji stjórnendur fréttastofa og ritstjórna um bætur sem dæmdar eru vegna „ólögmætrar framgöngu þessara eininga, allt að einum mánaðarlaunum,“ eins og það er orðað í bréfinu sem DV hefur undir höndum.

Auðmenn sækja að fréttastofu Stöðvar 2
Óskar Hrafn Þorvaldsson, fréttastjóri Stöðvar 2 og Vísis.is, gæti því verið krafinn um bætur af vinnuveitanda sínum fari svo að Karl Wernersson vinni meiðyrðamál sem hann hyggst höfða gegn fréttastofunum vegna umfjöllun þeirra um meintan umfangsmikinn fjármagnsflutning hans og annarra athafnamanna til annarra landa í kjölfar hruns Glitnis. Karl krefst þess að fá ummæli sem höfð voru um hann dæmd dauð og ómerk, en óvíst er hvort hann fari fram á bætur. Fleiri athafnarmenn, eins og Björgólfur Thor Björgólfsson, sem minnst var á í frétt Stöðvar 2 og Vísis þann 27. júlí hafa ýmist farið fram á afsökunarbeiðni eða sagst vera að íhuga að höfða mál gegn fréttastofunni.

Svona vildu þeir hafa þetta
Ari Edwald, forstjóri 365, segir þessar nýju reglur settar í fullu samráði við stjórnendur miðlanna í samtali við DV. „Þeir hafa verið áhugasamir um þetta mál og þeir vilja axla þessa ábyrgð,“ segir Ari.

„Mér hefur þótt þetta vera óheillaþróun undanfarið. Hún hefur verið með ólíkum hætti í prentmiðlum og ljósvakamiðlum. Í prentmiðlum er það samkvæmt prentlögum ritstjóri sem ber ábyrgð en þó hefur sá sem telur á sér brotið getað valið um að höfða mál gefn útgefanda. Og það hefur verið gert í æ ríkara mæli. Dómsstólar hafa dæmt útgefendur blaða til að standa ábyrga fyrir einstaka orðum sem falla í blöðunum. Í ljósvakamiðlunum er það sjónvarpsstjórinn, sem er í þessu tilfelli forstjóri 365, sem ber ábyrgðina,“ segir Ari.

Hann segir þetta óheppilegt vilji fólk að miðlarnir hafi sjálfstæði frá eigendum og framkvæmdastjórn fyrirtækisins. „Þá fer ekki alveg saman að þeir þurfi að hafa áhyggjur af hverju orði sem fellur. En stemmingin hefur fyrir fyrir því að stjórnendur umræddra miðla vilja bera ábyrgð og undirstrika í leiðinni sjálfstæði sitt til faglegrar stjórnuna á miðlinum,“ segir Ari.
„Svona vildu þeir hafa þetta.“

Ari telur þessar nýju reglur ekki vera til þess að menn forðist að tækla viðkvæmari og erfiðari mál líðandi stundar heldur þvert á móti. „Þessar reglur eru til þess að auka traust á fréttamiðlum 365 að okkar mati og til þess er leikurinn gerður.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.