Ríkissaksóknarinn í Noregi hefur gefið út ákæru á hendur manni um fertugt sem er gefið að sök að hafa smitað eiginkonu sína og dóttur vísvitandi af HIV-veirunni.
Maðurinn stundaði óvarið kynlíf með eiginkonu sinni seint um sumar og haust árið 2007 án þess að segja henni að hann væri HIV-smitaður. Faðir, móðir og dóttir eru HIV-smituð en maðurinn er ekki ákærður fyrir að hafa stundað kynlíf með dótturinni, sem er á táningsaldri, og smitað hana þannig af veirunni. Hún smitaðist þegar faðir hennar bað hana að þurrka upp blóð á heimilinu eftir að til slagsmála kom milli föður og móður. Dóttirin hefur vitnað að hann hafi ekki haft samræði við hana. Ekki kemur fram í ákærunni hvernig maðurinn sjálfur smitaðist.
Lögreglan í Drammen í Noregi hefur reynt að bera saman þessi þrjú HIV-smit til að ganga úr skugga um að þau séu öll frá föðurnum komin. Lögreglan getur ekki farið nánar út í rannsóknina á málinu að svo stöddu.
Samkvæmt skýrslu sem stofnunin HivNorege gerði við árslok 2008 hafa tólf mál ratað til dómstóla síðan um aldamót þar sem fólk smitar aðra af HIV-veirunni visvítandi. Samkvæmt skýrslunni féll fangelsisdómur í öllum málunum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu