Arnold framdi eitt mislukkaðasta bankarán sögunnar á föstudaginn var. Mynd: Tengist efni fréttar ekki beint.
Það er fátt sem kætir meira en að lesa um heimska glæpamenn. 34 ára karlmaður er í haldi lögreglunnar í Anchorage í Alaska þar sem hann rændi banka. Það var auðvelt fyrir lögregluna að finna kauða því hann framvísaði skilríkjum og reikningsnúmeri sínu áður en hann ákvað að láta til skarar skríða.
Ræninginn mislukkaði, Jarell Paul Arnold, gekk inn í USA Federal Credit Union bankann í Anchorage á föstudaginn vog spurðist fyrir um innistæðu sína. Gjaldkerinn bað því að sjálfsögðu um nafn, bankanúmer og skilríki sem Arnold lét af hendi eins og ekkert væri.
Hann afhenti gjaldkeranum því næst miða sem á stóð að hann væri með byssu og vildi fá peningana. Hann komst undan með um 600 dollara en var handtekinn á mánudaginn.
Arnold var dæmdur í 57 mánaða fangelsi árið 2004 fyrir bankarán og var því tiltölulega ný sloppinn út. Má því ætla að hann hafi hvorki hlotið betrun í fangelsinu né íhugað rækilega hvernig best væri að standa að bankaráni í þau tæpu fimm ár sem hann sat í svartholinu.
Það er Associated Press-fréttastofan sem greinir frá þessu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu