ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Málningu skvett aftur á heimili Hreiðars Más - myndir

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:23 › 13. ágúst 2009
Hús Hreiðars Más var atað rauðu lakki í annað sinn á skömmum tíma.

Hús Hreiðars Más var atað rauðu lakki í annað sinn á skömmum tíma.

  • Heimili Karls Wernerssonar í morgun

    Heimili Karls Wernerssonar í morgun

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, varð fyrir því í nótt að rauðu lakki var svett á íbúðarhús hans í Hlyngerði í Reykjavík. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem heimili Hreiðars Más er atað málningu. Athafnamaðurinn Karl Wernersson vaknaði einnig við vondan draum í morgun þegar hann sá að rauðu lakki hafði verið spreyjað á íbúðarhús hans að Engihlíð.

Velflestir þeir sem kenndir eru við íslensku útrásina hafa fengið rauða málningu eða lakk á heimili sín á undanförnum vikum en ekki er vitað hverjir eru þar að verki.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.