Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, segir að forsenda stýrivaxtalækkunar og endurreisnar sé samþykkt Icesave-samningsins. Þetta kom fram í máli hans á þingfundi í dag.
Seðlabankinn kynnti í morgun þá ákvörðun sína að hafa stýrivexti óbreytta eða 12 prósent.
„Gengi krónu hefur verið stöðugt frá síðustu vaxtaákvörðun, en mun lægra en peningastefnunefndin hefur talið viðunandi. Fyrir vikið hefur hægt á hjöðnun verðbólgunnar. Eigi að síður er þess vænst að verðbólga minnki hratt á ný síðar á árinu,“ segir í yfirlýsingu Seðlabankans í dag.
Seðlaabnkinn sér engin skýr merki um að lækkun stýrivaxta fyrr á þessu ári eigi umtalsverðan þátt í því að farið sé í kringum höftin, að innstæður á gjaldeyrisreikningum hafi aukist, eða að hún skýri almennt lágt gengi krónunnar. „Þó er ekki heldur hægt að útiloka slík tengsl. Á meðan krónan er jafn veik og hún hefur verið undanfarna mánuði eru því sterk rök gegn frekari lækkun vaxta.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna