Hjónin Pálmi Gestsson og Sigurlaug Halldórsdóttir, ásamt Mími Bjarka Pálmasyni, syni þeirra. Þau hafa nú lokið við að gera upp húsið Hjara, sem Pálmi fæddist í. Mynd: Halldór Sveinbjörnsson
Pálmi Gestsson hefur verið með annan fótinn í Bolungarvík allt sitt líf. Hann segir kostina við það að búa úti á landi miklu fleiri en gallana. Þar sé minna stress auk þess sem nálægðin við náttúruna sé mun meiri. Hann nefnir slæmar samgöngur sem einn helsta ókostinn við að búa afskekkt og segir nálægð við aðra íbúa bæði geta flokkast sem kost og galla.
„Kostirnir við að búa úti á landi eru helst þeir að hér er lífið miklu rólegra. Það er ekki þessi ys og þys sem fylgir borginni; ekki þetta stress,“ segir leikarinn Pálmi Gestsson. Pálmi hefur verið með annan fótinn í Bolungarvík mestallt sitt líf en í Bolungarvík er meðalfermetraverð á seldum eignum með því lægsta sem gerist á Íslandi, ef smæstu þorpin eru frátalin.
Í DV í dag er úttekt á ódýrustu húsum Íslands en þar kemur fram að Bolungarvík, Ólafsvík, Siglufjörður og Raufarhöfn eru á meðal þeirra bæjarfélaga þar sem hægt er að eignast einbýlishús fyrir minna en tíu milljónir.
Ódýrasta húsið á söluskrám kostar þrjár milljónir en það er á Fáskrúðsfirði.
Nánar um málið í DV





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli