ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Endurholdgaður fílaguð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:48 › 13. ágúst 2009
  • Guðinn Ganesh er með fílshöfuð en ekki Risab litli. Samt telja þorpsbúar hann vera Ganesh endurholdgaðan.

    Guðinn Ganesh er með fílshöfuð en ekki Risab litli. Samt telja þorpsbúar hann vera Ganesh endurholdgaðan.

Þúsundir flykkjast nú í afskekkt, nepalskt þorp til að tilbiðja Risab, sex mánaða gamalt barn sem er með fjórar hendur og fjóra fótleggi. Risab er nefnilega samvaxinn sníkilstvíbura sínum sem fæddist án höfuðs. Þorpsbúar telja Risab vera fílaguðinn Ganesh endurholdgaðan. Ganesh er vel þekkt goð í hindúatrú og er guð upphafsins og hindrananna. Ganesh birtist í mörgum myndum og getur haft allt frá tveimur upp í sextán handleggi.

Rikhi Ghimire, faðir Risabs, segir marga gefa honum gjafir en aðrir telja barnið afbrigðilegt.

„Sumir segja að hann sé eins og guð og þeir koma til að tilbiðja hann og gefa honum pening. Þeir gefa nokkrar rúpíur og færa honum gjafir sem eru oftast matur eða föt. Aðrir hafa sagt að hann líkist apa eða sé nornabarn.“

Um það bil fimm þúsund manns hafa heimsótt barnið síðan það fæddist að sögn Prem KC, kennara í þorpinu. Hann segir suma hafa gengið eða keyrt langar vegalengdir til að sjá undrabarnið. Ghimire þorpspresturinn kennir síðbúnum og óstöðugum monsúnrigningum um ástand barnsins.

„Sumir segja að þetta sé kraftaverk, eða að þetta sé guð, á meðan aðrir halda því fram að bölvun hvíli á barninu,“ segir Ghimire.

Januk, móðir Risabs, á tvo aðra syni og þjáðist gífurlega fimm dögum fyrir fæðingu hans. Hún hélt að hún myndi deyja í fæðingunni en þegar Risab fæddist var hún dauðhrædd um viðbrögð þorsbúanna.

„Ef eiginmaður minn hefði ekki verið hjá mér hefði ég verið hrædd um að þorpsbúar myndu kalla mig norn og drepa mig,“ segir Januk. Hún segir eins einfalda hluti og að svæfa Risab eða baða hann sé mjög erfitt. Faðir Risabs vill að hann gangist undir aðgerð til að skilja hann frá tvíbura sínum svo hann geti lifað eðlilegu lífi en fjölskyldan hefur ekki efni á því.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.