ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S

Búsáhöld barin við Austurvöll

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:43 › 13. ágúst 2009
Icesave-samningnum er mótmælt á Austurvelli í dag.

Icesave-samningnum er mótmælt á Austurvelli í dag. DV-mynd Rakel Ósk

Mótmælendur fjölmenna nú á Austurvöll til að taka þátt í samstöðufundi InDefence-samtakanna þar sem IceSave-samningnum er harðlega mótmælt. Nokkur hundruð manns eru saman komin en mótmælin hófust klukkan 17.

Meðal þeirra sem hvatt hafa almenning til að mæta á Austurvöll og láta í sér heyra er þingmaður Framsóknarflokksins, Eygló Harðardóttir.

Viðstaddir berja á búsáhöld og bera skilti og borða með hinum ýmsu slagorðum.

Þegar leið á mótmælin fjölgaði mikið í hópi mótmælenda og var Austurvöllur þétt staðinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.