ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Bróðir knattspyrnustjörnu fannst látinn á Krít

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:20 › 13. ágúst 2009
Luke Young og fjölskylda hans syrgir dauða Andre.

Luke Young og fjölskylda hans syrgir dauða Andre.

Sautján ára bróðir enska landsliðsmannsins Luke Young, sem leikur með Aston Villa, fannst látinn eftir að hann fór út að skemmta sér á eyjunni Krít.

Andre Young hafði farið út að skemmta sér á mánudagskvöldið sem átti að vera síðasta kvöld ferðar hans til grísku eyjarinnar. Lík hans fannst svo á byggingarsvæði ferðamannasstaðarins Malia í gærmorgun.

Í dag sendi eldri bróðir hans, knattspyrnustjarnan Luke Young, frá sér yfirlýsingu fyrir hönd fjölskyldu sinnar.

„Fjölskylda mín og ég erum eyðilögð yfir andláti yngri bróður míns Andre á Malia fyrr í þessari viku. Hann var hæfileikarík manneskja og duglegur námsmaður og þetta er gríðarleg sóun á svo efnilegri ævi,“ segir Young í yfirlýsingu sinni.

Hann biðlar til allra sem gætu haft upplýsingar um síðustu klukkustundirnar í lífi bróður síns að gefa sig fram við lögreglu.

Foreldrar Andre flugu til Krítar til að bera kennsl á lík sonar síns sem hafði farið í frí til eyjunnar ásamt tólf félögum sínum.

Hann fannst með alvarlega höfuðáverka á byggingarsvæði en vitni segja að hann hafi drukkið stíft kvöldið sem hann hvarf.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.