ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Ari Edwald spjallar við starfsfólkið

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:56 › 13. ágúst 2009

„Það ríkir engin spenna hjá starfsfólkinu,“ segir segir Ari Edwald, forstjóri 365, sem í dag fundar með starfsmönnum sínum. Boðað hefur verið til fundar á Krókhálsinum klukkan ellefu og í Skaftahlíðinni klukkan tvö. Ari segir fundina aðeins hefðbundið spjall við starfsfólkið þar sem farið verður yfir stöðu fyrirtækisins og fólk fær tækifæri til að ræða saman. „Ég geri það reglulega að spjalla við fólkið,“ segir hann og tekur fyrir að stórra fregna sé að vænta á fundunum.

Fjölmiðlar hafa flestir ekki farið varhluta af því erfiða árferði sem nú ríkir. Að sögn Ara blómstrar rekstur 365 hins vegar sem aldrei fyrr en fyrirtækið rekur meðal annars Fréttablaðið og Stöð 2. „Reksturinn gengur betur en áætlanir gerðu ráð fyrir og markaðsstaðan hefur aldrei verið betri. Það verður bara skemmtilegt yfirbragð á þessu spjalli,“ segir hann.
Ari harmar þær fregnir sem settar hafa verið fram í Sandkornum á dv.is um að starfsfólk 365 sé margt hvert uggandi um stöðu sína. „Þetta er bara ekki rétt,“ segir hann.

Í vor var starfshlutfall starfsfólks í fullu starfi hjá 365 minnkað í 90 prósent en ákveðið að hlutfallið yrði aftur hækkað í 100 prósent 1. september. Ari segir þetta standa. „Auðvitað. Þetta var ákveðið,“ segir hann.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.