ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Þræta fyrir kerfisbundnar nauðganir

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:30 › 12. ágúst 2009
Götur Tehran, höfuðborgar Íran, loguðu í óeirðum eftir kosningasigur Ahmadinejad.

Götur Tehran, höfuðborgar Íran, loguðu í óeirðum eftir kosningasigur Ahmadinejad. Mynd: AFP

Talsmaður íranska þingsins hefur vísað frá ásökunum leiðtoga stjórnarandstöðunnar þar í landi þess efnis að mótmælendur, og stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar, hafi sætt kerfisbundnum nauðgunum í fangelsi.

Til átaka kom eftir úrslit forsetakosninganna í Íran á dögunum þar sem þúsundir mótmælenda fjölmenntu að mótmæla endurkjöri Mahmoud Ahmadinejad. Hundruð manns voru handtekin. Eftir ásakanir um líkamsmeiðingar og nauðganir á föngunum krafðist leiðtogi eins stjórnarandstöðuflokksins, Mehdi Karroubi, rannsóknar á meintum nauðgunum í Kahrizak og Evin-fangelsunum á sunnudaginn var.

Í dag vísaði talsmaður íranska þingsins þessum ásökunum á bug.

„Samkvæmt rannsókn þingsins sættu engir fangar nauðgunum né annarri kynferðislegri áreitni í Kahrizak og Evin,“ sagði talsmaðurinn Ali Larijani.

„Slíkar ásakanir eiga sér enga stoð í raunveruleikanum.“

Rannsóknarnefndir hafa verið settar á fót til að rannsaka óeirðirnar í Íran eftir forsetakosningarnar þar sem harðar ásakanir hafa flogið úr röðum stjórnarandstöðunnar. Lögregluyfirvöld hafa þegar viðurkennt að einhverjir þeirra sem verið hafa í haldi síðan í júni hafi sætt pyntingum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.