ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Sundurlyndisfjanda vinstri manna á haf út

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:11 › 12. ágúst 2009
Björgvin G. Sigurðsson kallar eftir samstöðu vinstri manna. Óttast afleiðingar sundrungar.

Björgvin G. Sigurðsson kallar eftir samstöðu vinstri manna. Óttast afleiðingar sundrungar.

„Sendum sundurlyndisfjanda vinstri manna, sem tryggði völd Sjálfstæðisflokksins og hægri manna hér lítt rofið í hálfa öld með hörmulegum afleiðingum, út fyrir hafsauga,“ skrifar Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í pistli sem birtist í dag á Pressan.is.

Í pistli sínum rifjar Björgin upp sigur Reykjavíkurlistans árið 1994 og segir þar fyrst hafa hrikt í stoðum valdakerfis Sjálfstæðisflokksins. Samstaða vinstri manna í einni breiðfylkingu hafi þá kostað íhaldið völdin.

Sundurlyndisfjandinn
„Á kosningavöku R-listans það kvöld hélt einn af elstu stuðningsmönnum jafnaðarstefnunnar á Íslandi eftirminnilega ræðu. Þar skoraði hann, Marías gamli frá Ísafirði, á félagshyggjufólk að senda nú sundurlyndisfjandann á haf út. Sundurlyndisfjandann sem gerði það að verkum að Ísland eitt norrænna ríkja bjó við ofríki hægri flokks í stað stöðugrar stjórnar jafnaðarmanna. Nú skyldum við stilla saman strengi til framtíðar og halda áfram á þeirri braut sem mörkuð var með sigri R-listans. Sameinuð og sundurlyndisfjandalaus geta vinstrimenn íslenskir komið íhaldinu varanlega frá völdum,“ skrifar Björgvin.

Björgvin kallar eftir samstöðu í núverandi ríkisstjórnarsamstarfi, en verulega hefur hrikt í stoðum þess undanfarna daga vegna Icesave-málsins.

Kallar eftir samstöðu
„Nú reynir á samstöðuna. Ef við glötum henni í erli erfiðra verkefna kemur það sögulega tækifæri til varanlegrar vinstri stjórnar á Íslandi ekki aftur í bráð. Ekkert má verða til þess að rjúfa samstöðu og samvinnu vinstri flokkanna og því ber okkur sem sitjum fyrir flokkana á Alþingi og berum ábyrgð á ríkistjórnarsamstarfinu að halda saman og vinna okkur í gegnum erfiðu málin sem sum eru sannarlega tröllvaxin,“ skrifar Björgvin.

Björgvin segir brýnt að vinstri-menn stilli strengina fast saman og vinni áfram að því markmiði að hér á landi vaxi upp breið hreyfing allra stjórnmálaflokkanna vinstra megin við miðjuna.

„Sendum sundurlyndisfjanda vinstri manna, sem tryggði völd Sjálfstæðisflokksins og hægri manna hér lítt rofið í hálfa öld með hörmulegum afleiðingum, út fyrir hafsauga. Treystum raðirnar og vinnum það afrek að koma þjóðinni út úr þrotum markaðshyggjunnar og inn í stöðugleika norræns velferðarþjóðfélags í fremstu röð,“ segir Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra og núverandi þingmaður Samfylkingarinnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.