ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE

Óttast um líf sonar síns

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:06 › 12. ágúst 2009
Kristjana Steinþórsdóttir á tvo syni. Annar þeirra er sprautufíkill, en hinn náði nýverið að snúa baki við fíkniefnum. Hún óskar eftir frekari úrræðum frá yfirvöldum.

Kristjana Steinþórsdóttir á tvo syni. Annar þeirra er sprautufíkill, en hinn náði nýverið að snúa baki við fíkniefnum. Hún óskar eftir frekari úrræðum frá yfirvöldum. Heiða Helgadóttir

Í viðtali í Vikunni fyrir þremur árum kallaði Kristjana Steinþórsdóttir eftir úrræðum fyrir fíkla á götunni en sjálf var hún þá með tvo sprautufíkla, syni sína, inni á heimili sínu. Í dag er annar þeirra á beinu brautinni en hinn enn í neyslu og Kristjana er orðin langeyg eftir lausnum.

Kristjana er nú aftur í viðtali í Vikunni í þeirri von að saga hennar og ótal annarra í sömu sporum opni augu ráðamanna. Hún óttast að kreppan dragi jafnvel enn frekar úr vilja og getu til að bregðast við vandanum og bendir á sem dæmi að nú þurfi fólk í einhverjum tilfellum að greiða fyrir eftirmeðferð á Vogi.

Yngri sonur Kristjönu er þrítugur og hefur undanfarna mánuði leigt með fólki úti í bæ, en áður bjuggu bræðurnir heima hjá henni þar sem hún vildi ekki hafa þá á götunni. „Á meðan hann bjó hér hvarf hann oft og ef ég hafði ekki heyrt af honum lengi leitaði ég hans hjá lögreglu og víðar. Ég hafði líka oft samband við einhvern í undirheimunum, lét boð út ganga og fékk þannig fréttir. Oft hafði einhver „díler“ séð hann eða eitthvað; maður fór svo sem ýmsar leiðir. Hann er orðinn rólegri en áður en er auðvitað fíkill og þarf að fá sitt,“ segir hún. „Það sem fer verst með mann er hræðslan; ég er stöðugt hrædd um son minn og um það sem morgundagurinn muni bera í skauti sér. Ég veit um marga einstaklinga í neyslu sem hafa skyndilega látið lífið af völdum of stórra skammta, hjartabilana eða af öðrum ástæðum. Maður spyr sig hvenær eitthvað í líkamanum gefur sig.“

Allt viðtalið við Kristjönu Steinþórsdóttur um erfiðleikana sem fylgja því þegar fjölskyldumeðlimir leiðast út í eiturlyfjafíkn má lesa í síðasta tölublaði Vikunnar. Í viðtalinu er einnig rætt við eldri son hennar, sem kominn er á beinu brautina. Hann hefur þau skilaboð að færa fólki í sömu stöðu: "Aldrei hætta að reyna!"



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.