ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Leið Buchheit þegar verið reynd

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:29 › 12. ágúst 2009

Sú leið sem lagasérfræðingurinn Lee Buchheit leggur til að Íslendingar beiti í sambandi við Icesave-samninginn hefur þegar verið reynd og var alfarið hafnað af bæði Bretum og Hollendingum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

Buchheit hefur í dag tjáð sig í fjölmiðlum um að bíða eigi með að staðfesta Icesave-samninginn þar til vitað sé hvað fáist fyrir eignir Landsbankans. Buchheit fundaði með fjárlaganefnd í dag og segir í samtali við Rúv að þingið geti einfaldlega sagt að það sé ótímabært að annað hvort staðfesta eða hafna ríkisábyrgð á samning þar sem vanti upplýsingar um hversu mikið þurfi að greiða úr ríkissjóði vegna ábyrgðarinnar. Hann telur þingið geta hafnað samningnum og að Bretar geti ekki litið á það sem samningsrof þar sem alltaf hafi legið fyrir að samningurinn gæti strandað í þinginu.

Við þessum ummælum hefur verið brugðist í fjármálaráðuneytinu og í tilkynningu segir að sú leið Buchheit að bíða þar til eignir þrotabús Landsbankans séu komnar í verð hafi verið lögð til af íslensku samninganefndinni en verið alfarið hafnað af bæði Bretum og Hollendingum.

„Leið Buchheit hefur því verið reynd og reyndist ekki fær. Í staðinn var fallist á að ekki kæmi til greiðslu úr ríkissjóði á sjö ára tímabili, hvorki vegna vaxta né höfuðstóls, og gæfist þar með svigrúm til að hámarka virði eigna þrotabús Landsbankans,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Þar segir enn fremur að samkvæmt mati skilanefndar Landsbankans er gert ráð fyrir 83 prósenta endurheimtum af höfuðstóli en íslenska samninganefndin hefur miðað við 75 prósenta endurheimtur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.