Á morgun hyggjast þrettán félagar úr CrossFit Iceland að hlaupa til styrktar Mæðrastyrksnefnd. Ætla hlaupahetjurnar að leggja af stað frá Akranesi, hlaupa meðfram Akrafjalli, um Hvalfjörð og þaðan til Reykjavíkur. Áætlar hópurinn að vera 14 tíma á leiðinni.
Ætla CrossFit-félagar að leggja af stað eldsnemma í fyrramálið og vera komnir að World Class í Laugardal um klukkan 19:30.
Um klukkan 17, við Korputorg bætast svo fleiri við hlaupahópinn og er öllum velkomið að taka þátt í að hlaupa síðustu 15 kílómetrana og styðja við bakið á ofurhugunum. Síðasti spölurinn verður í lögreglufylgd inn í Laugardalinn þar sem móttökunefnd bíður þeirra og slegið verður upp grillveislu.
Upplýsingar fyrir þá sem vilja leggja málefninu lið má finna hér að neðan.
Hægt verður að fylgjast með hlaupinu í rauntíma með því að smella hér.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur - Hátúni 12, 105 Reykjavík Kt. 470269-1119 - Banki: 0101-26-35021





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna