Síðustu þrjá mánuði hefur gúrkum að verðmæti um fimm þúsund punda, eða rúmlega einnar milljónar íslenskra króna, verið stolið úr gróðurhúsum í Ástralíu. Alls er um ellefu þjófnaði að ræða og í þeim nýjasta sem átti sér stað á laugardagsnótt var fimmtíu pokum af gúrkum stolið.
Lögreglan í landinu hefur ekki margar vísbendingar til að leysa þessi mál og hefur biðlað til almennings og beðið fólkið í landinu um hjálp.
Yfirlögregluþjónninn Kym Zander segir í samtali við The Telegraph að glæpirnir séu svo sannarlega einstakir.
„Við eigum í erfiðleikum með að ákvarða hvar gúrkurnar enda. Það er augljóst að einhver sem veit hvaða gróðurhús eru að rækta gúrkur stendur á bak við þessa þjófnaði. Þjófnaðirnir eru þannig að gúrkurnar eru týndar, þeim er pakkað í poka eða fötur og tilbúnar til sölu á markaðnum. Næsta morgun þegar garðyrkjubændur koma til vinnu til að flytja þær til verslana er gróðurhúsið tómt.“
Hann segir enn fremur að þó að lögreglan myndi finna gúrkurnar væri erfitt að bera kennsl á þær stolnu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung