ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Gaf afmælisgestum sínum munnmök

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:45 › 12. ágúst 2009
  • Stúlkan fagnaði átján ára afmælinu með sérstökum hætti. Myndin er uppstillt.

    Stúlkan fagnaði átján ára afmælinu með sérstökum hætti. Myndin er uppstillt.Photos.com

Ítölsk stúlka sem varð átján ára á dögunum ákvað að halda upp á daginn með pompi og prakt. Engu var til sparað og til að gleðja gestina enn frekar tók stúlkan upp á því að bjóða öllum karlkynsgestunum upp á munnmök sem þeir þáðu með gleði. En gleðin staldraði stutt við í veislunni.

Eftir að stúlkan hafði gefið átta gestum munnmök byrjaði henni að líða skringilega samkvæmt ítalska blaðinu Gazzettina. Stúlkan hafði drukkið talsvert magn af áfengi áður en hún hófst handa við munnmökin.

Í kjölfarið var stúlkan flutt á sjúkrahús þar sem dælt var upp úr henni. Ekki fylgir fréttinni hvort eitthvað meira en áfengi hafi valdið vanlíðaninni.

Einn gestur veislunnar segir í samtali við blaðið að stúlkan hafi verið alsæl með fögnuðinn þangað til hann breyttist í ófögnuð.

„Hún var alsæl og æpti í sífellu: „Ég er átján ára og núna get ég gert það sem ég vil.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.