ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Fagnað á Subway

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:04 › 12. ágúst 2009
Skyndibiti í ólgusjó stjórnmálanna.

Skyndibiti í ólgusjó stjórnmálanna.

Alþingi kaus í gær sjö manna Þingvallanefnd úr röðum þingmanna. Nefndarmanna bíður ærið verkefni og þurfa þeir að ákveða hvað skuli gera við svæðið þar sem Hótel Valhöll eitt sinn stóð.

Mæðir á nefndarmönnum hvort eigi að byggja nýtt hótel og þannig endurvekja Valhallarstemninguna, byggja eitthvað allt annað eða einfaldlega tyrfa yfir svæðið. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er meðal nefndarmanna í þessari virðulegu nefnd sem hefur verið kölluð fínasta nefnd landsins.

Þrátt fyrir það fagnaði Þorgerður kosningunni ekki á svo mjög virðulegan hátt heldur lét sér nægja að gæða sér á Subway í hádeginu á bensínstöð Esso á Ártúnshöfða.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.