ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Fær borgað fyrir að sofa

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:06 › 12. ágúst 2009
Madigan fær borgað fyrir að sofa í lúxusrúmum, þó ekki þessu sem myndin sýnir.

Madigan fær borgað fyrir að sofa í lúxusrúmum, þó ekki þessu sem myndin sýnir.

Háskólaneminn Roisin Madigan hefur nælt í eitt besta starf í heimi hjá lúxusrúmaframleiðandanum Simon Horn í Bretlandi. Hún fær þúsund pund, eða rúmlega tvö hundruð þúsund íslenskar krónur, fyrir að sofa í lúxusrúmum á hverjum degi í mánuð.

Hún eyðir átta tímum á dag í rúmunum í sýningarsal framleiðandans og bloggar um reynslu sína. Suma daga þarf hún jafnvel að stilla sér upp í glugga verslunar Simon Horns. Starfið er liður í svefnkönnun sem framleiðandinn gerir til að geta veitt sölumönnum og viðskiptavinum betri upplýsingar um rúmin.

Starfið var auglýst og bárust fjögur hundruð umsóknir fyrsta daginn og tvö hundruð daginn eftir.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.