ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Einn tekinn vegna metráns

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:30 › 12. ágúst 2009
Graff's skartgripaverslunin er nokkrum milljörðunum fátækari eftir ránið í gær.

Graff's skartgripaverslunin er nokkrum milljörðunum fátækari eftir ránið í gær. Mynd: AFP

Að sögn Scotland Yard hefur einn maður verið handtekinn í tengslum við vopnað rán í skartgripaverslun í gær. Um stærsta gimsteinarán sögunnar í Bretlandi er að ræða en ræningjarnir komust undan með skartgripi og eðalsteina að andvirði um 8,4 milljarða króna.

Hinn handtekni, sem er fimmtugur, er ekki talinn vera einn af tveimur ræningjunum sem náðust á öryggismyndavélar skartgripaverslunarinnar Graff's á New Bond stræti seinnipartinn í gær.

Tveir vopnaðir menn, klæddir í sitt fínasta púss, gengu sallarólegir inn í skartgripaverslunina í gær og komust undan með 43 skartgripi. Þeir virðast hafa vitað nákvæmlega hvað þeir áttu að taka því fengurinn er metinn á 40 milljónir punda, eða um 8,4 milljarða íslenskra króna.

Gangandi vegfarandi náði upptöku af flótta þjófanna á farsíma sinn í gær og hafa breskir fjölmiðlar birt það í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.