ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Dæmalaus uppgjöf og undirlægjuháttur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:36 › 12. ágúst 2009
Einar K. Guðfinnson sakar Fréttablaðið um uppgjöf og undirlægjuhátt.

Einar K. Guðfinnson sakar Fréttablaðið um uppgjöf og undirlægjuhátt.

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur rýnt vel í leiðara dagblaða undanfarna daga og á bloggsíðu sinni í kvöld segir þingmaðurinn öfugsnúið að í leiðara Fréttablaðsins um helgina hafi verið hvatt til að drífa í að klára Icesave-málið á Alþingi en í breska viðskiptadagblaðinu Financial Times sé skrifað af mikilli næmni og djúpum skilning um „samningsómynd Vinstri grænna og Samfylkingarinnar.“

„Einhvern veginn er þetta hálfvegis öfugsnúið. Leiðari í Fréttablaðinu hvetur til þess að drifið sé í að klára Icesavemálið á Alþingi til þess að hægt sé að snúa sér að næsta versi. Ekkert tillit er tekið til þess að samningsómynd Vinstri grænna og Samfylkingar er gjörsamlega óviðunandi. Bara að rusla þeim af og horfa svo fram á veginn, er tónninn sem blaðið slær,“ skrifar Einar.

Skilningur Breta á afleitum samning
Hann vindur sér síðan í leiðara Financial Times í dag. Þar þykir Einari koma fram mjög næmur og djúpur skilningur á því „hversu afleitur samningur þetta er fyrir okkur Íslendinga.“

„Skilningur á okkar viðhorfum skín í gegn í hverju orði. Það er rakið að skuldbindingarnar svari til tveggja milljóna króna á hvert mannsbarn á Íslandi ( 10 þúsund sterlingspund) og séu svipuð upphæð og landsframleiðsla okkar á hálfu ári. Blaðið líkir þessu við stöðuna sem kom upp í Chile árið 1982 þegar landið axlaði himinháar skuldir sem einkaaðilar stofnuðu til. Landið var skilið eftir í skuldaklyfjum, sem tók áratug að vinna sig út úr. Það sama gæti komið fyrir á Íslandi,“ skrifar Einar.

Dæmalaus uppgjöf og undirlægjuháttur
„Athyglisverð er sú röksemdafærsla Financial Times að með því að neyta svona aflsmunar geti það stuðlað að því að Ísland taki upp einangrunarstefnu. Stuðningur við ESB umsókn fari minnkandi og að Rússar muni örugglega fylgjast vel með á hliðarlínunni. Færð eru svo rök fyrir því að Bretar og Hollendingar geti sjálfum sér um kennt. Þeim hefði átt að vera ljóst að Icesaveundrinu, með sínum ofurvöxtum, hefði ekki mátt treysta nema sem svaraði til þeirra trygginga sem Ísland gæti veitt. Því eigi að dreifa byrðunum af Icesave hruninu með sanngjarnari hætti,“ skrifar Einar og furðar sig síðan á leiðaraskrifum útbreiddasta dagblaðs landsins með orðunum:

„Þetta eru athyglisverð sjónarmið. Ekki síst af því að þau hrjóta úr breskum penna. Og fyrir vikið verður ennþá nöturlegra að lesa þá dæmalausu uppgjöf og undirlægjuhátt sem birtist okkur á leiðarasíðu okkar útbreiddasta dagblaðs.“

Þess má geta að Einar skrifaði grein í Fréttablaðið í dag um téðan leiðara blaðsins á laugardaginn síðastliðinn undir fyrirsögninni „Icesave-spuni aðstoðarritstjóra.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.