ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Blásið til félagsfundar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:36 › 12. ágúst 2009
Borgarahreyfingin blæs til opins félagsfundar klukkan átta annað kvöld.

Borgarahreyfingin blæs til opins félagsfundar klukkan átta annað kvöld.

Borgarahreyfingin hefur ákveðið að blása til opins félagsfundar annað kvöld klukkan átta í Hafnarhúsinu. Fram kemur á heimasíðu flokksins að um sé að ræða þemafund „þar sem þingmaður og sérstakir gestir fara yfir stöðuna á Icesavemálinu, fyrirvarana, hvað það þýðir að hafna ríkisábyrgðinni og fleira sem viðkemur því erfiða máli.“

Fyrr í dag var sagt frá því á dv.is að Katrín Snæhólm Baldursdóttir hefur sagt af sér sem varamaður í stjórn stjórn Borgarahreyfingarinnar. Þetta var tilkynnt í gærkvöldi eftir stjórnarfund hreyfingarinnar en enginn þingmanna Borgarahreyfingarinnar mætti á stjórnarfundinn í gærkvöldi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.