ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Barnalán í bítinu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:04 › 12. ágúst 2009
Kolbrún Björnsdóttir. Ber barn undir belti í Bítinu.

Kolbrún Björnsdóttir. Ber barn undir belti í Bítinu.

„Þetta var meðvituð ákvörðum með maka og börnum. Þetta er mjög lýðræðislegt heimili,“ segir fjölmiðlakonan Kolbrún Björnsdóttir sem stýrir útvarpsþættinum Í bítið á Bylgjunni ásamt Heimi Karlssyni. Hún á von á barni með unnusta sínum, Árna Árnasyni, en þau hafa verið í sambúð í á sjötta ár og trúlofuð í ein fimm. Árni greindi stoltur frá þessu á Facebook-síðu sinni nýlega en Kolbrún er komin rúma þrjá mánuði á leið.

Kolbrún á tvö börn fyrir og Árni eitt en í viðtali við DV árið 2008 sagðist fjölmiðlakonan glaðlynda viss um það að hún og Árni ætluðu ekki að eignast fleiri börn. „Okkur langar ekki í fleiri börn. Við fengum okkur hunda í staðinn,“ sagði Kolbrún létt á sínum tíma en ástin virðist hafa borið þá ákvörðun ofurliði á endanum.

„Það var kannski aðeins of snemmt að ákveða það eitthvað endanlega,“ segir Kolbrún en það verður svo sannarlega myndarlegt fjölskyldulífið hjá parinu þegar fjórða barnið bætist í hópinn eftir áramót.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.