ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE

Bangsímon bankaræningi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:40 › 12. ágúst 2009
Harður nagli í Bangsímon-peysu.

Harður nagli í Bangsímon-peysu.

Bankaræningi sem rændi banka vopnaður byssu í Chicago á föstudaginn bar það með sér að vera sannkallaður harðjaxl. Hvað sem því líður þá hefur bandaríska alríkislögreglan, FBI, gefið honum gælunafnið „Bangsímon bankaræninginn.“

Ástæðan fyrir því er að hinn harðsvíraði bankaræningi klæddist líka svona huggulegri peysu með flennistórri mynd af teiknimyndapersónunni víðfrægu.

FBI-lögreglumenn sendu frá sér mynd af kappanum sem náðist á öryggismyndavélar bankans í von um að almenningur gæti aðstoðað við leitina.

Bandaríska alríkislögreglan er býsna fræg við að uppnefna glæpamenn með hnyttnum nöfnum í von um að auka áhuga meðal almennings í von um að aðstoð fáist við að leysa mál.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.