ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

112 greindir – skólar starfa eðlilega

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:08 › 12. ágúst 2009
Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir.

Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir.

Greinst hafa 112 tilfelli svínaflensunnar, H1N1, hérlendis þar af eru 61 karl og 51 kona. Samkvæmt upplýsingum frá sóttvarnarlækni getur allt skólastarf í landinu hafist með eðlilegum hætti næstu daga og vikur þrátt fyrir heimsfaraldurinn.

Skólastjórnendur og foreldrafélög hafa lagt inn fjölda fyrirspurna vegna þessa hjá sóttvarnarlækni sem sendi út tilkynningu nú í dag þar sem hann áréttar þetta.

Í framhaldi vill sóttvarnarlæknir árétta eftirfarandi:

1. Inflúensufaraldurinn er tiltölulega vægur og skapar engar forsendur fyrir skorðum við skólahaldi. Skólastarf á því að geta hafist með eðlilegum hætti.
2. Unnið er að viðbragðsáætlun vegna inflúensufaraldurs fyrir skóla landsins í samvinnu menntamálaráðuneytis og skólastjórnenda. Gert er ráð fyrir að sú áætlun verði tilbúin fyrir 1. september 2009.
3. Skólastjórnendur eru hvattir til að halda því á lofti við nemendur og starfsmenn skóla að hreinlæti sé það sem mestu máli skipti til að draga úr smithættu. Þar ber fyrst að nefna handþvott en einnig að fólk hafi á sér einnota pappírsþurrkur til að hnerra eða hósta í. Vísað er á heimasíðuna influensa.is þar sem frekari upplýsingar er að finna.
4. Veikist nemandi, þannig að einkennin bendi til inflúensu, er honum ráðlagt að halda sig heima í sjö daga frá upphafi veikinda.
5. Ekki er mælt með fyrirbyggjandi veirulyfjameðferð í skólum.

Flestir sem greinst hafa með svínaflensuna eru á aldrinum 15-29 ára og mikill meirihluti tilfellanna, 80 af alls 120, er á höfuðborgarsvæðinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.