ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Þurfa að greiða 70 milljónir fyrir samkeppnislagabrot

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:56 › 3. júlí 2009
Aðgernirnar miðuðu að því að draga úr samkeppnislegu sjálfstæði Tals og vinna gegn því að Tal keppti við Og fjarskipti.

Aðgernirnar miðuðu að því að draga úr samkeppnislegu sjálfstæði Tals og vinna gegn því að Tal keppti við Og fjarskipti. Mynd af heimasíðu Tals.

Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Teymi og Og-fjarskipti hafi brotið gegn samkeppnislögum á síðasta ári. Teymi þarf að greiða 70 milljónir króna í stjórnvaldssekt en auk þess er lagt til að Teymi selji frá sér eignarhlut sinn í Tali.

Aðgernirnar miðuðu að því að draga úr samkeppnislegu sjálfstæði Tals og vinna gegn því að Tal keppti við Og fjarskipti. Þá þóttu tiltekin ákvæði í samningi Tals við Og fjarskipti um aðgang að farsímaneti til þess fallin að draga úr samkeppni á markaði. Á meðan á sölumeðferð stendur er mælt fyrir um aðgerðir til að tryggja samkeppnislegt sjálfstæði Tals gagnvart Og-fjarskipti að því er fram kemur í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Með ákvörðun í dag lýkur athugun Samkeppniseftirlitsins sem hófst með húsleit á starfstöðvum Teymis, Og-fjarskipta og Tals þann 7. janúar sl. Undir rekstri málsins snéru forsvarsmenn Teymis sér til Samkeppniseftirlitsins og óskuðu eftir viðræðum um sátt vegna málsins. Undirgengust Teymi og Og-fjarskipti sátt sem liggur tilgrundvallar fyrrgreindri ákvörðun.

„Við mat á sektarfjárhæð er meðal annars horft til þess að umrædd fyrirtæki höfðu frumkvæði að sáttarviðræðum við Samkeppniseftirlitið og hafa nú undanbragðalaust játað brot sín á samkeppnislögum. Einnig hefur verið fallist á að hlíta fyrirmælum sem til þess eru fallin að efla samkeppni. Hefur þetta auðveldað og stytt mjög rannsókn og málsmeðferð samkeppnisyfirvalda sem hefur jákvæð samkeppnisleg áhrif. Er horft til þessa samstarfsvilja við mat á sektum,“ segir í tilkynningunni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.