ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Þarf að greiða 29 milljónir vegna slyss

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:43 › 3. júlí 2009
Myllan ehf. þarf að greiða manninum 29 milljónir króna vegna slyssins.

Myllan ehf. þarf að greiða manninum 29 milljónir króna vegna slyssins. Mynd DV

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Mylluna ehf. til að greiða manni 28,9 milljónir króna vegna vinnuslyss sem varð þann 19. október 2005. Maðurinn vann sem tækjamaður hjá Myllunni ehf. en af gefnu tilefni skal tekið fram að ekki er um að ræða Mylluna – brauð og kökugerð.

Þegar slysið varð var fyrirtækið að vinna við lagningu háspennuvírs í Áreyjardal á Þórdalsheiði við Reyðarfjörð. Maðurinn rotaðist við höggið en mætti engu að síður til vinnu tveimur dögum síðar. Í dómnum kemur fram að honum hafi hins vegar orðið mjög lítið úr verki og hafi verið frá vinnu dagsparta, heila daga og jafnvel nokkra daga samfellt eða allt að heilli viku vegna mikillar vanlíðunar sem rekja megi til slyssins, þ.m.t. flökurleika, þreytu og höfuðverkja.

Í vottorði heimilislæknis,frá því í maí 2007, kemur fram að maðurinn hafi ekki getað stundað vinnu vegna þreytu, höfuðverkja, hávaðaóþols og ljósfælni. Eðlilegur svefn hafi ekki lengur verið fyrir hendi auk þess sem úthald, andlegt og líkamlegt hafi verið mjög slæmt. Hann geti ekki einbeitt sér nema stutt í einu, muni illa manna- og staðarnöfn og eigi til að missa stjórn á skapi sínu alveg gagnstætt því sem var fyrir slysið. Þá eigi hann til sofa hátt í sólarhring í senn eftir 2 – 3 daga vökur. Var það mat taugasálfræðings að maðurinn hafi hlotið meðalalvarlegan heilaskaða í kjölfar slyssins.

Dómari taldi að ekki hafi verið sýnt fram á að stefnanda hafi orðið á mistök við verkið eða að hann hafi ekki sýnt nægilega aðgæslu umrætt sinn. „Með hliðsjón af því, svo og þeirri staðreynd að verkstjórn var engin, og að ekki er upplýst um aðdraganda slyssins, sbr. það sem áður segir um tilkynningaskyldu stefnda, ber að fella bótaábyrgð á slysi stefnanda á stefnda,“ segir í niðurstöðu dómsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.