Þrátt fyrir að verulega hefur hægt á aukningu atvinnuleysis síðustu mánuði er atvinnuleysi enn í sögulegum hæðum. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi mælist nú rétt tæplega 8,5 prósent eftir að hafa aukist á gríðarlegum hraða í kjölfar bankahrunsins og hefur atvinnuleysi hefur aldrei aukist jafn mikið og hratt og síðustu mánuði.
Þetta kemur fram á vef Greiningar Íslandsbanka. Í september síðastliðnum var skráð atvinnuleysi aðeins 1,3 prósent og hafði þá verið undir 3 prósent á fjórða ár. Búast má við að atvinnuleysi muni enn aukast áður en það tekur að hjaðna á nýjan leik.
Þannig gera nýjar eða nýlegar spár Seðlabankans, Fjármálaráðuneytisins og hagdeildar Alþýðusambands Íslands ráð fyrir því að atvinnuleysi nái hámarki í þessari niðursveiflu á næsta ári á bilinu 9,6-11 prósent en verði komið niður í 7,5-9 prósent árið 2011.
Spá Seðlabankans frá því í maí síðastliðnum er svartsýnust á þróun atvinnuleysis en í þeirri spá er gert ráð fyrir 11 prósent atvinnuleysi á næsta ári, og 9 prósent atvinnuleysi árið 2011. Spá Fjármálaráðuneytisins frá sama mánuði er bjartsýnni en spá hagdeildar ASÍ sem birt var í gær lendir þarna mitt á milli. ASÍ gerir ráð fyrir að atvinnuleysi verði að meðaltali 10,2 prósent á næsta ári og 8,2 prósent árið 2011.
Atvinnuleysi verður svo í kringum 7 prósent að meðaltali árið 2013 að mati ASÍ en það er í samræmi við mat Seðlabankans um að atvinnuleysi verði enn mjög mikið í sögulegu samhengi langt fram á næsta áratug.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir