ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Slökktu "eldinn" með fjarstýringunni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:15 › 3. júlí 2009
Slökkviliðsmenn hafa líklega aldrei fengið jafn auðvelt verkefni.

Slökkviliðsmenn hafa líklega aldrei fengið jafn auðvelt verkefni.

Slökkviliðsmenn í Zurich í Sviss fengu heldur óvenjulegt útkall á dögunum. Það var frá eldri konu sem sagði slökkviliðinu að kviknað væri í sjónvarpinu hjá sér. Þegar slökkvilið kom á staðinn var enginn eldur sjáanlegur og enginn reykur heldur.

Þegar slökkviliðsmenn fóru að sjónvarpinu kom í ljós að konan var með stillt á þýska sjónvarpsstöð sem sendir út mynd af arni með eldi. Slökkviliðsmenn beittu því nýstárlegri aðferð við að slökkva eldinn – með fjarstýringunni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.