Ketill Pálsson hefur ekið um á Peugot 106-rafmagnsbíl undanfarna tvo mánuði. Hann sá bílinn, sem var fluttur inn til landsins árið 1997, auglýstan í Bændablaðinu og ákvað að slá til. Hann segist ekki sjá eftir því að hafa keypt bílinn, enda reiknast honum til að það kosti eina krónu að keyra hvern kílómetra.
„Ég er í skýjunum yfir þessu. Þetta er ekkert vesen. Maður bara stingur þessu í hvaða innstungu sem er, hvort sem er 10 ampera innstungu eða 16 ampera. Ef ég er búinn að keyra eitthvað áður en ég fer í vinnuna legg ég honum bara nálægt húsinu og sting í samband. Mér hefur fundist ég vera eins og kúreki með hestinn minn,“ segir Ketill.
Bíllinn er sem fyrr segir kominn nokkuð á aldur, en hann hefur dugað eigendum sínum vel hingað til. Hann er keyrður 37 þúsund kílómetra og í honum eru ennþá upphaflegu rafgeymarnir. „Það er ekkert viðhald á þessu,“ segir hann.
Ketill segist nota bílinn innanbæjar og hann dugi vel til þess. „Þetta passar innanbæjar, til að keyra í og úr vinnu.“ Rafmagnsbíllinn er ekki eins kraftmikill og hefðbundnir bílar, en Ketill segir hann gæddan öðrum eiginleikum. „Hann nær 90 til 100 kílómetra hraða, en ef ég er að keyra upp Ártúnsbrekkuna, þá hef ég hann upp í 70. Viðbragðið er hins vegar miklu betra og ég skil alla við hliðina á mér eftir á ljósum.“
Fjallað er um rafbílavæðinguna sem er handan við hornið í helgarblaði DV.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna