ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Sauðfé minnkar út af loftslagsbreytingum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:37 › 3. júlí 2009
Sauðfé á eyjunni Hirta hefur minnkað stöðugt undanfarin ár. Ástæðan er hlýnandi veðurfar.

Sauðfé á eyjunni Hirta hefur minnkað stöðugt undanfarin ár. Ástæðan er hlýnandi veðurfar.

Vísindamenn í Skotlandi kenna loftslagsbreytingum og hlýrra veðurfari um það af hverju villt sauðfé á eynni Hirta hefur minnkað stöðugt undanfarin ár. Vísindamenn hafa rannsakað ástæður þessa frá árinu 1985 og síðan þá hefur sauðfé minnkað um fimm prósent.

Þannig hafa lappir þeirra orðið styttri nánast með hverju árinu og líkamsþyngd þeirra minnkað. Að sögn Tim Coulson, vísindamanns frá Imperial háskólanum í London, gátu aðeins stórar og líkamlega burðugar kindur lifað af harða vetur á eyjunni.

En hlýnandi veðurfar hefur gert það að verkum að sauðfé á eyjunni hefur aðgang að fæði fleiri mánuði á hverju ári. Aðstæður séu því ekki lengur jafn erfiðar sem gerir það að verkum að sauðfé, sem alla jafna lifði ekki af harða vetur á eyjunni, getur nú komist lífs af án mikilla vandkvæða.

Coulson segir að ómögulegt sé að segja til um hvernig útlitið á eyjunni verði eftir hundrað ár. Þó geti vel farið svo að sauðfé haldi áfram að minnka.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.