Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Læknar hafa gefið grænt ljós á að John Demjanjuk, sem sakaður er um aðild að dauða 29 þúsund fanga í útrýmingarbúðum nasista í Seinni heimsstyrjöldinni, sé nógu heilsuhraustur til að hægt sé að rétta yfir honum.
Demanjanjuk, sem er 89 ára gamall, hefur verið í varðhaldi í Munchen í Þýskalandi síðan í mars. Þá tapaði hann dómsmáli um að fá að vera áfram í Bandaríkjunum þar sem hann hafði dvalið um langt skeið. Búist er við að formleg ákæra verði gefin út í þessum mánuði. Að mati lækna má rétta yfir honum í tveimur 90 mínútna lotum á hverjum degi.
Sonur hans, Jon Demnjanjuk yngri, sagði í tölvupósti til AP fréttastofunnar að læknar áætli að hann eigi um sextán mánuði eftir ólifaða.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu