ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Pólitískt vanhæfi Þorgerðar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:00 › 3. júlí 2009
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir telur ekki forsvaranlegt að fólk sem á hagsmuna að gæta taki ákvarðanir sem varða hagsmuni skattgreiðenda.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir telur ekki forsvaranlegt að fólk sem á hagsmuna að gæta taki ákvarðanir sem varða hagsmuni skattgreiðenda.

„Í ljósi þeirra hagsmuna sem Þorgerður Katrín hefur í þessu máli, ef við gerum ráð fyrir því að þau séu með sameiginlegan fjárhag eins og flest önnur hjón hér á landi, hefði hún átt að greina frá þessum hagsmunum strax í upphafi, ekki síst í ljósi þess að Kaupþing fékk mikla fyrirgreiðslu frá Seðlabankanum,“ segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, alþingismaður Samfylkingarinnar. Í umræðunni um hugsanlegt vanhæfi bendir Sigríður á að munur sé á stjórnsýslulegu vanhæfi og pólitísku vanhæfi.

„Ég tel að um pólitískt vanhæfi sé að ræða. Það er gjá á milli þeirra sem fengu þessar niðurfellingar á skuldum sínum og þjóðarinnar, því aðrir sitja uppi með sínar skuldbindingar. Það er ekki forsvaranlegt að fólk sem á hagsmuna að gæta, sé að taka ákvarðanir sem varða hagsmuni skattgreiðenda,“ segir hún. Aðspurð hvort hún taki undir með Þór Saari, sem telur að Þorgerði Katrínu, sé ekki sætt áfram á Alþingi, segir Sigríður: „Það hlýtur að vera spurning fyrir flokksmenn í Sjálfstæðisflokknum og kjósendur flokksins. Þeir þurfa að svara því hvort þeir séu sáttir við hana sem fulltrúa sinn á alþingi, það má vel vera að þeir séu sáttir við það.“

Sigríður segir kúlulánin, sem æðstu stjórnendur bankans fengu, hafa kristallast í tíðarandanum og það sjúka ástand sem kom þjóðinni á hliðina. „Þetta var leið innherja, án þess að taka áhættu, til að græða óhemju fjármuni,“ segir hún. „Ef við setjum þessar lánveitingar í samhengi við þann niðurskurð sem er fram undan er ljóst að félags- og tryggingamálaráðuneytið þarf að skera niður um 900 milljónir króna á næsta ári og það mun skerða verulega þjónustu þess ráðuneytis. Það er ágætt að skoða fjárhæðir lánanna í því ljósi.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.