Arðgreiðslurnar til 17 af starfsmönnum Kaupþings sem fengu lán frá bankanum til að kaupa hlutabréf í honum námu rúmum 1,2 milljörðum árin 2007 og 2008.
Arðgreiðslurnar til sautján af starfsmönnum Kaupþings vegna hlutabréfaeignar þeirra í Kaupþingi á árunum námu rúmlega 1,2 milljörðum króna, samkvæmt útreikningum DV. Blaðið birtir í dag upplýsingar upp úr lánabók Kaupþings frá sumrinu 2006 og eru útreikningarnar byggðir á því.
Starfsmennirnir fjármögnuðu hlutabréfakaupin með lánum frá Kaupþingi og voru persónulegar ábyrgðir þeirra fyrir lánunum fellldar niður í lok september á síðasta ári.
Efstir á blaði yfir hæstu arðgreiðslurnar eru Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson. Samkvæmt mati DV fékk Sigurður 134 milljónir á árunum 2007 og 2008 vegna hlutabréfaeignar sinnar í Kaupþingi og Hreiðar Már fékk 185 milljónir.
Þeir starfsmenn sem fengu lægstu arðgreiðslurnar voru samt með tæplega milljón krónur á mánuði á árunum tveimur bara vegna arðgreiðslnanna. Starfsmennirnir fengu því greiddan arð af hlutabréfaeign sem þeir hafa í einhverjum tilfellum aldrei þurft að greiða fyrir.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna