„Þetta er dæmi um þá gjörspillingu sem hefur verið hér í gangi,“ segir Þór Saari, Alþingismaður Borgarahreyfingarinnar, um þær upplýsingar sem birtar hafa verið í DV upp úr lánabók Kaupþings frá því 2006.
„Kaupþing hefur keypt sér aðgang að ráðamönnum með því að gefa mökum þeirra svona gríðarlega fyrirgreiðslu. Svo fella þeir niður skuldina þegar einsýnt er að viðtakandi lánsins verður ekki milljarðamæringur af láninu,“ segir Þór í viðtali í helgarblaði DV.
Þór vitnar þar til Kristjáns Arasonar, eiginmanns Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi menntamálaráðherra en Kristján fékk 893 milljóna króna kúlulán hjá Kaupþingi 2006.
„Mér finnst að Þorgerði Katrínu sé ekki stætt sem þingmanni lengur né sem varaformanni Sjálfstæðisflokksins. Hrunið hér heima stafar af samkrulli peningaafla og stjórnmálaflokka, sérstaklega Sjálfstæðisflokksins sem er komið bersýnilega í ljós. Þetta er skammarlegt og það þarf að hreinsa almennilega út úr þessu kerfi. Þetta er ömurleg spilling sem er enn ömurlegra að horfa upp á,“ segir Þór Saari.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna