Ingibjörg Elíasdóttir var ráðin tímabundið sem lögfræðingur hjá Jafnréttisstofu fyrir hálfu öðru ári án auglýsingar. Nú er staða hennar auglýst með þröngum skilyrðum sem Ingibjörg uppfyllir þó fullkomlega. Sigurður Líndal segir auglýsingu Jafnréttisstofu á gráu svæði og vekja upp spurningar um hvort hún miði að einum umsækjenda öðrum fremur.
Hæfniskröfur í auglýsingu Jafnréttisstofu vekja athygli en þar segir: „Algjörlega nauðsynlegt er að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu af jafnréttismálum og hafi stundað nám í kynjafræðum þar með talinn kvennaréttur.“
Sigurði Líndal lagaprófessor þykja skilyrðin of þröng. „Mér finnst þetta of rígskorðað. Mér finnst að hugsanlega mætti túlka þetta þannig að þarna væri verið að miða á einhverjar örfáar manneskjur eða jafnvel einn umsækjanda. Það er þannig keimur af þessu. Mér finnst þessi auglýsing of þröng og spurning hvort hún stenst jafnréttislög. Ég ætla ekkert að fullyrða um það en finnst eðlilegt að spurt sé. Þetta er á gráu svæði,“ segir Sigurður.
Nánar í helgarblaði DV.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir