ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Geiri er Ted Bundy

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:15 › 3. júlí 2009

Ásgeir Þór Davíðsson, betur þekktur sem Geiri á Goldfinger, er mjög virkur Facebook-notandi og skemmtir sér við að taka hin ýmsu persónuleikapróf. Hann tók nýlega prófið „Hvaða raðmorðingi ertu?“ og fékk niðurstöðuna Ted Bundy, en hann er einn alræmdasti raðmorðingi Bandaríkjanna.

Þetta leist Geira ekki á þrátt fyrir að í lýsingu á Ted Bundy, og þar af leiðandi Geira, standi að honum líki kvenfólk og láti ekkert stöðva sig. Geiri bjóst nefnilega bara alls ekki við því að vera líkt við raðmorðingja þó hann hafi tekið prófið því eins og hann segir á síðunni sinni þá hélt hann kannski að það yrði svarmöguleiki sem myndi tjá Geira að hann væri alls enginn raðmorðingi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.