ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.1° 12m/s WSW

Friðrik hættir hjá Landsvirkjun

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:13 › 3. júlí 2009

Friðrik Sophusson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar í haust en hann hefur gegnt starfinu í rúm 10 ár eða frá byrjun árs 1999. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.

Í samtali við fréttastofu RÚV sagði Friðrik að hann hefði ráðgert að hætta í lok árs í fyrra en stjórn Landsvirkjunar hefði beðið hann um að halda áfram vegna breyttra aðstæðna. Friðrik sagði þá að hann myndi ekki starfa lengur en í eitt ár. Samkvæmt frétt RÚV verður auglýst eftir nýjum forstjóra á sunnudaginn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.