ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

FME rannsakar: DV heldur áfram

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:15 › 3. júlí 2009
Fjármálaeftirlitið rannsakar nú umfjallanir DV um lánabók Kaupþings.

Fjármálaeftirlitið rannsakar nú umfjallanir DV um lánabók Kaupþings.

Fjármálaeftirlitið (FME) rannsakar nú hvort umfjallanir DV um lánabók Kaupþings séu brot á lögum um bankaleynd. Frá þessu var greint í hádegisfréttum RÚV. Fjögur samskonar mál gegn fjórum íslenskum blaðamönnum hafa verið til skoðunar hjá Fjármálaeftirlitinu.

Í hinum fjórum málunum fengu blaðamennirnir, sem birt höfðu upplýsingar upp úr lánabókum fjármálafyrirtækja, send bréf frá Fjármálaeftirlitinu vegna hinna meintu brota á bankaleynd sem þeim bar að svara innan tiltekins tíma. Líklegt þykir að DV muni fá sams konar meðferð hjá Fjármálaeftirlitinu fyrir að birta upplýsingar upp úr lánabók Kaupþings.

Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, sagði í samtali við DV fyrr í vikunni að niðurstaða úr rannsókn stofnunarinnar á málum blaðamannanna fjögurra myndi liggja fyrir á næstunni.

Ritstjórn DV gerir engar athugasemdir við skoðun Fjármálaeftirlitsins en áréttar að gögnin eru fengin eftir óhefðbundnum leiðum. Þá er það mat ritstjórnarinnar að upplýsingar þær sem blaðið hefur birt úr lánabók Kaupþings eigi erindi við almenning og varði almannaheill. Opinberunin stendur því einkahagsmunum ofar. DV mun því halda áfram að birta upplýsingar úr lánabókinni og varpa þannig ljósi á aðdraganda hruns íslenska fjármálakerfisins.

Í helgarblaði DV, sem kom út í dag, er ítarleg umfjöllun um lán til hlutabréfakaupa til starfsmanna Kaupþings. Upplýsingarnar eru teknar upp úr lánabókinni frá sumrinu 2006 og sýna stöðu lánveitinga til starfsmanna bankans eins og þær voru þá. 22 af helstu starfsmönnum bankans höfðu þá fengið 23,5 milljarða að láni frá bankanum.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.