Hitaveita Suðurnesja. Getur GGE borgað fyrir virkjanir HS-Orku, spyr fulltrúi minnihlutans í Reykjanesbæ.
Geysir Green Energy, væntanlegur kaupandi HS Orku af Reykjanesbæ, skuldar um 23 milljarða króna í Íslandsbanka. Eigið fé GGE er aðeins um 4 prósent af því sem það var þegar best lét. KPMG metur það nú á 670 milljónir króna en það var hæst metið á 17 milljarða króna. Á sama tíma voru eignir félagsins metnar á 60 til 70 milljarða króna.
Íslandsbanki á 40 prósent í GGE í gegn um Glacier sjóðinn. Atorka á 41 prósent hlut en félagið er nú í greiðslustöðvun. Mannvit er þriðji stærsti hluthafinn.
Íslandsbanki horfir því fram á hrikalegar afskriftir og tap sem stærsti eigandi og kröfuhafi í GGE verði ekki gerðar viðeigandi ráðstafanir. Í reynd er GGE í fangi ríkisins vegna gjaldþrota og greiðslustöðvunar stærstu eigenda.
Samkvæmt heimildum DV eru væntanleg kaup GGE á HS Orku af Reykjanesbæ ekki í gerð í samráði við Íslandsbanka.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“