ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Ekki fyrir lofthrædda

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:18 › 3. júlí 2009
Útsýnið af pallinum er svo sannarlega ekki fyrir lofthrædda.

Útsýnið af pallinum er svo sannarlega ekki fyrir lofthrædda. Mynd Ananova

Lofthræddir ættu að láta það vera að heimsækja nýjustu viðbót Sears turnsins í Chicago; útsýnisplötu úr gleri á einni af hæstu hæðum turnsins. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er útsýnið svakalegt en turninn stendur í 442 metra hæð og er tæplega sex sinnum hærri en Hallgrímskirkja.

Áhugasamir geta farið út á glerplötuna og horft yfir alla borgina en platan er aðeins rétt rúmur sentímeter að þykkt. Það var arkitektinn Ross Wilmer sem hannaði pallinn og segir hann að þeir sem leggjast niður á honum líði eins og þeir séu að fljúga.

Áhuginn hefur ekki látið á sér standa en 25 þúsund manns hafa gengið út á plötuna að jafnaði á hverjum einasta degi síðan hún var tekin í notkun.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.