ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

„Ekkert betra til en konur“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:45 › 3. júlí 2009
Gylfi Ægisson
Heldur ekki fram hjá þótt hann sé kvennsamur.

Gylfi Ægisson Heldur ekki fram hjá þótt hann sé kvennsamur.

Gylfi Ægisson segir ekkert betra í þessum heimi en konur. Hann talar opinskátt um kvennsemi sína í helgarviðtali við DV, drykkjuna sem varð honum nánast að bana og síðustu stundina með Rúnari Júlíussyni.

Aðspurður hvort Gylfi hafi lært eitthvað um ástina eftir öll þessi ár segir hann erfitt að nefna eitthvað ákveðið. „Maður eltir á sér bibbann alveg frá því að maður fæðist og það er stundum eins og maður hugsi með honum. Það er þó alltaf jafngott að vera ástfangin eins og það er vont að vera í ástarsorg. En það er ekkert betra til en konur. Það er bara á hreinu.“
Þó að Gylfi hafi verið í mörgum samböndum á lífsleiðinni segir hann það oftar en ekki sér að kenna að þau gangi ekki upp. „Þó að ég sé búinn að vera í mörgum samböndum er það mest mér að kenna frekar en þessum konum. Til dæmis sagði konan sem ég var að skilja við núna: „Gylfi þú ert besti maður sem ég hef kynnst en sá erfiðasti líka.““

Nánar í helgarblaði DV



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.