„Hann fór of fljótt. Ég veit ekki hvernig fólk mun taka þessu en ég vildi að ég hefði farið frekar,“ segir Jermaine Jackson, bróðir poppstjörnunnar Michael Jackson sem lést langt um aldur fram á fimmtudaginn fyrir viku. Jermaine segir að hann hefði frekar valið að deyja sjálfur frekar en að láta bróður sinn deyja.
Jermaine og Michael voru mjög nánir en þeir skipuðu hljómsveitina Jackson 5, þar sem ferill Michael hófst fyrir alvöru. „Ég var kjölfestan hans og var alltaf til staðar fyrir hann. Þetta er svo óraunverulegt,“ sagði Jermaine í viðtali sem tekið var við hann fyrir utan Neverland búgarðinn.
Jermaine segir að hann vilji að Jackson fái að hvíla á staðnum sem honum leið best á; Nverland. „Þetta er hans heimili. Hann bjó þetta til og af hverju ætti hann ekki að hvíla hérna. Ég finn nærveru hans.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung