ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Samherji íhugaði að kaupa Stímbréfin

07:54 › 28. júlí 2009
Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja.

Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja.

Samherji íhugaði að kaupa hlutabréfin í Glitni og FL-Group sem síðar voru sett inn í eignarhaldsfélagið Stím. Nokkrum mánuðum eftir kaup Stím keypti dótturfélag Samherja hluti í FL-Group á miklu lægra gengi. Stím-málið verður að öllum líkindum sent til sérstaks saksóknara.

Sjávarútvegsfyrirtækið Samherji ætlaði sér að kaupa stóran hluta þeirra hlutabréfa í Glitni og FL-Group sem síðar fóru inn í einkahlutafélagið Stím, samkvæmt heimildum DV. Samherji hætti hins vegar við og skýrir það af hverju félag í eigu Glitnis varð stærsti hluthafinn í félaginu með 32,5 prósenta eignarhluta. Þetta var hluturinn Samherji ætlaði sér að kaupa. Glitnir sat hins vegar uppi með hlutinn þegar Samherji gekk úr skaftinu og ekki tókst að finna annan kaupanda þrátt fyrir að Glitnir hafi sett sig í samband við fjölmarga aðra fjárfesta.

Stím var einkahlutafélag í eigu ýmissa fjárfesta sem keypti hlutabréf í Glitni og FL-Group fyrir um 25 milljarða króna í nóvember 2007, þar af voru tæpir 20 fengnir að láni frá Glitni. Um var að ræða kúlulán til 12 mánaða á 20 prósent vöxtum. Félagið keypti í Glitni fyrir tæpa 16,5 milljarða og í FL-Group fyrir rúma 6,5 milljarða.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.