ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Stóri skjálftinn á að koma í kvöld

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:49 › 27. júlí 2009
Lára spáir stórum jarðskjálfta á Krýsuvíkursvæðinu. Hún spáði fyrir Suðurlandsskjálftunum árið 2000 og 2008.

Lára spáir stórum jarðskjálfta á Krýsuvíkursvæðinu. Hún spáði fyrir Suðurlandsskjálftunum árið 2000 og 2008. Mynd Kristinn Magnússon

„Mér hefur verið sýnt að það komi stór skjálfti þarna, ég stend á þessu svæði og upp í hugann kemur dagsetningin 27. júlí,“ segir Lára Ólafsdóttir sjáandi í viðtali í nýjasta tölublaði Vikunnar. Lára spáir því að í kvöld komi stór jarðskjálfti, nánar tiltekið klukkan 23.15.

„Einnig finn ég fyrir tímasetningunni 23.15 en þori þó ekki að staðhæfa að það verði rétt. Ég hef ekki fengið sterk skilaboð um tímann en finnst þessi síðasta klukkustund fyrir miðnætti eitthvað sérstök […] Þennan dag mun eitthvað magnað gerast, ég bara veit það. Ég hef tilfinningu fyrir stórum skjálfta og mér finnst að hann verði þarna,“ segir Lára.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Lára spáir fyrir jarðskjálftum á Íslandi. Hún spáði fyrir Suðurlandsskjálftunum árið 2000 og 2008. „Ég sé jarðsprungu þarna á Krýsuvíkursvæðinu. Það er heldur ekki langt í tvö eldgos á landinu, hvort annað verður þar og hitt í Heklu, ég hef ekki fengið nægilega skýr skilaboð um það til að vilja fullyrða það. Það er gott fyrir fólk að hafa 27. júlí til athugunar, það mun eitthvað gerast þann dag og ég sé alltaf Krýsuvík þegar ég hugsa um hann.

Lára kemur víða við í viðtalinu við Vikuna og segist meðal annars telja sig vita hvar Madeleine McCann er, litla stúlkan sem hvarf fyrir rúmum tveimur árum í Portúgal. Einnig segir hún vera stutt í banatilræði við Barack Obama Bandaríkjaforseta.

Ítarleg viðtal við Láru í nýjasta tölublaði Vikunnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?