Lára sjáandi: Ætla að vera heima í kvöld
Lára Ólafsdóttir sjáandi ætlar að vera heima hjá sér í kvöld klukkan korter yfir ellefu. Kristinn Magnússon.
„Það er eitthvað að gerast allavega, eigum við ekki að bíða og sjá og vita hvernig dagurinn fer,“ segir Lára Ólafsdóttir sjáandi sem spáir því að stór jarðskjálfti komi á Krýsuvíkursvæðinu í kvöld, nánar tiltekið klukkan 23.15. Hún segir að hún finni að eitthvað sé að, veðrið hafi verið furðulegt síðustu daga og það sé eitthvað að fara gerast.
„Þetta er tíminn sem ég fæ upp, hann hefur alltaf komið upp. Ég veit hins vegar ekki hvað er að fara gerast. Veðrið er búið að vera skrýtið, þessi vindur og frost. Ég bíð og vona eins og allir aðrir,“ segir Lára.
Hún segist ætla að vera heima hjá sér klukkan korter yfir ellefu í kvöld enda búi hún í sterku húsi. „Það er voða pressa á manni núna, fólk er mikið að tala við mig. En ef það kemur ekki skjálfti, er ekkert við því að gera, en það er eitthvað sem er að fara gerast. Það er bara það sem ég finn, ég veit ekki hvað ég get sagt um það. Þessi tími kemur alltaf upp og þetta svæði. Nú ef hann kemur ekki þá kemur hann bara næstu daga.“
Lára segir að með spá sinni sé hún ekki að reyna hræða neinn, hún finni þetta einungis á sér og því finnst henni að hún eigi að láta fólk vita að því. „Mér finnst ég vera að gera rétt, þetta er eitthvað sem ég finn og deili því með ykkur.“
Lára spáði skjálftanum í nýjasta tölublaði Vikunnar. Þar segir hún einnig að hún viti hvar Madeleine McCann er, litla stúlkan sem hvarf fyrir rúmum tveimur árum í Portúgal. „Ég er búin að senda bréf til Scotland Yard og til foreldra hennar,“ segir Lára en vill ekki gefa upp hvar Madeleine er. „Ég held að það borgi sig ekki, þetta mun allt koma í ljós. Ég geri mitt besta, því hún sækir að mér þessi litla stelpa. Það er gott að koma þessu frá sér.“
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 23:40
Skokkari fékk í sig trjágrein og lést
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 22:43
Tekinn á 142 - staðgreiddi sektina
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 22:35
Sarkozy fékk byssukúlu í póstkassann
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 22:35
Enginn þingmanna mætti á fundinn
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 22:33
Sól eða endurgreiðsla
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 22:02
Átta látnir eftir eldsvoða í Belgíu
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 21:41
Gylfi: Stórhættuleg bónuskerfi
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 21:01
50 þúsund bílar seldir ólölega úr landi
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 20:20
Sóttu fótbrotinn hestamann
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 20:08
Frá Guantanamo í golfið
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 20:02
Tölvuþrjótar réðust á Twitter
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 19:21
Gekk berserksgang og réðist á starfsmann
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 19:01
Birgitta: Fólk vinni úr reiði sinni
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 18:38
Maðurinn sem á heimsmet í heimsmetum
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 17:51
Þráinn vill samflokksmenn sína burt
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 17:16
Harður árekstur í Ártúnsbrekku - miklar tafir
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 16:55
Tengist hún hvarfi Madeleine McCann?
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 16:38
Eigandi Vatnsstígs 4 langþreyttur á skemmdarvörgum
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 16:17
Neyddur til keðjureykinga
Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl 16:03







