Hollenskur hópur hótar því að ráðast á Ísland samþykki Alþingi ekki Icesave-skuldbindingarnar. Það var Viðar Helgi Guðjohnsen, formaður Landssambands ungra frjálslyndra, sem vakti athygli á þessu á bloggsíðu sinni í gær. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og skrifaði fulltrúi hollenska hópsins Viðari bréf eftir að færsla hans birtist.
Hótanirnar sem um ræðir eru birtar á vefsíðunni herenscheet.com. Þar er sagt að Ísland sé öxulveldi hins illa og nú sé útlit fyrir að Íslendingar ætli að ganga á bak orða sinna og hafna Icesave-skuldbindingum sínum, sem þeir áður höfðu samið um. Hópurinn virðist hafa kynnt sér Ísland vel. Þar kemur fram að lykillinn til að ná Íslandi á sitt vald sé að ná tökum yfir Keflavíkurflugvelli, eina alþjóðaflugvellinum á Íslandi.
Þá kemur fram á vefsíðu Hollendinganna að næsta skref sé að ráðast inn í höfuðstöðvar Landsbankans í Austurstræti. Birt er loftmynd af höfuðstöðvum Landsbankans og sagt að þar séu innistæður hollenskra sparifjáreigenda geymdar. Næsta skref segja Hollendingarnir vera að ná tökum yfir útvarps- og sjónvarpsstöðvum.
„Augljóslega er þetta einhverslags sjúkur húmor en ef greinin er lesin í gegn renna á mann tvær grímur um hvort í raun þessi grein sé skrifuð í gríni eða í reiði þar sem mikið er skrifað um óvinveitta Icesave reikninga sem gerðu íslenskum almenningi kleift að stela ævisparnaði Hollendinga. Ekkert er farið í hvort raunveruleg ríkisábyrgð hvíli á þessum innistæðum en eins og margoft hefur komið fram þá var Landsbankinn einkafyrirtæki og því ekki í höndum ríkisins hvorki hér né erlendis að ábyrgjast,“ segir Viðar í bloggfærslunni þar sem hann vakti athygli á hollensku síðunni.
Í gær barst Viðari bréf frá einum af forsvarsmönnum hópsins sem hann birtir á Facebook-síðu sinni. Þar kemur fram að áætlanir hópsins séu hernaðarleyndarmál og þess krafist að hann taki færsluna af netinu. Að lokum kemur fram að hópurinn standi við ætlanir sínar.
Hollenska síðan í enskri þýðingu





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“