Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Búið er að slökkva gróðureldinn sem kom upp á Esjunni fyrr í dag. Þar kviknaði í mosa og öðrum gróðri og fóru tveir slökkviliðsmenn á vettvang og slökkti eldinn. Eldurinn náði yfir 200 fermetra svæði og gekk slökkvistarfið vel að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu. Notaðar voru svokallaðar klöppur til að slökkva eldinn og einnig var náð í vatn frá læk sem rennur í grendinni.
Svæðið er þó enn vaknað til að fyrirbyggja að eldur nái að breiða úr sér í glæðunum. Eldurinn var nokkuð ofarlega í fjallinu en ekki er vitað hvað varð til þess að eldurinn kviknaði.
Þá voru slökkviliðsmenn að störfum á milli Hlegafells og Valahnjúka við Kaldársel í Hafnarfirði í morgun eftir að eldur kviknaði í gróðri í gær.





Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir
Náðu að flýja meðan heimilið logaði