ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Vonar að Bjarni læri að hugsa

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:39 › 11. júlí 2009
Bruninn á Þingvöllum. Össur Skarphéðinsson lítur á skrif Bjarna Harðarsonar sem mistök.

Bruninn á Þingvöllum. Össur Skarphéðinsson lítur á skrif Bjarna Harðarsonar sem mistök. Rakel Ósk

,,Mér finnst aðallega sorglegt að Bjarni Harðarson skuli ætla mér að gleðjast yfir stórrbruna á þar sem líf og limir fólks voru í hættu. Bjarni hefur greinilega ekkert lært af beiskri reynslu sinni af fyrri fljótfærni," segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra og nefndarmaður í Þingvallanefnd vegna þeirra ummæla Bjarna Harðarsonar, bóksala og fyrrverandi alþingismanns, að Össurhafi fengið langþráðan draum sinn uppfylltan með bruna Valhallar á Þingvöllum. Össur segist þó ekki ætla að erfa þessi skrif bóksalans á Selfossi. Ráðherrann segist vona að sú stund renni upp að Bjarni læri að hugsa áður en til axarskafta kemur.
,,Ég fyrirgef honum þessi mistök hinsvegar og óska honum þess eins að Bjarni læri einhvern tímann að hugsa áður en hann skrifar," segir Össur.

,,



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.